Hér fyrir neðan eru algengar spurningar og svör. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að hafðu þá endilega samband og við segjum þér allt sem þú vilt vita.
Samningur um leigutíma er bindandi. Ef upp koma óvæntar aðstæður er mikilvægt að hafa samband sem fyrst svo við getum fundið farsæla lausn í sameiningu.
Það getur verið erfitt að komast hjá því að bílar verði fyrir einhverjum skemmdum. Ef skemmdir á bíl eða slit eru meiri en það sem eðlilegt má teljast þarf leigutaki að greiða aukalega fyrir það. En hvað er eðlilegt slit? Hér má sjá dæmi um hvað telst eðlilegt og hvað ekki varðandi útlit og ástand bíls þegar honum er skilað.
Samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er FLEX skylt að krefja viðskiptavini um viðurkennd persónuskilríki áður en viðskipti geta átt sér stað. Löggild skilríki eru einungis: rafræn skilríki, ökuskírteini og vegabréf. Fólk með erlent ríkisfang þarf ávallt að framvísa vegabréfi.
Verði FLEX bíllinn þinn fyrir, eða leigutaki valdur að, tjóni skal tilkynna það í netfangið [email protected] eða í síma 419-2000. Starfsfólk FLEX mun leiðbeina þér um næstu skref. FLEX bílar eru tryggðir hjá Sjóvá.