Langtímaleiga fyrir einstaklinga

Þægileg og hagkvæm leið til að reka nýjan bíl

Einföld, þægileg og hagkvæm leið til að reka bíl

Langtímaleiga hjá FLEX er afar þægileg og örugg leið til að reka nýja bíla með hagkvæmari hætti. Þegar þú velur langtímaleigu forðastu sveiflur og óvænt útgjöld sem fylgja því að eiga bíl. Með því að vera hluti af stærri heild næst aukin hagkvæmni sem viðskiptavinir FLEX njóta góðs af.

Einfaldara líf

Þegar þú leigir bíl hjá FLEX þarftu aðeins að sjá honum fyrir orku, FLEX sér um allt hitt.


Allt hitt sem FLEX sér um:
  • Þjónustuskoðanir
  • Smurþjónusta
  • Dekkjaþjónusta
  • Viðhald
  • Tryggingar
  • Bifreiðagjöld
Ferlið er einfalt
1
Velja bíl

Veljið bíl í sýningarsal FLEX á flex.is eða hjá BL (Sævarhöfða 2, Kauptúni 1 og Hesthálsi 6-8)

2
Pantaðu bílinn

Pantaðu bílinn á flex.is eða hjá söluráðgjafa BL

3
Lánshæfi

Ef umsækjandi stenst lánshæfisreglur okkar klárum við samninginn rafrænt

4
Afhending

Þú mætir á umsömdum tíma í sýningarsal BL og færð nýja FLEX bílinn þinn í afhentan

Engar áhyggjur af viðhaldi bílsins!

Viðskiptavinir þurfa einungis að mæta með bílinn í þjónustu þegar kallið kemur.

Þjónustuskoðanir

Alltaf í toppstandi

Smurþjónusta

Regluleg smurning

Dekkjaþjónusta

Dekkjaskipti og dekkjahótel

Viðhald

FLEX sér um viðhaldið

Sparaðu í bílarekstrinum
Hvernig getur verið hagkvæmara að leigja en að eiga bíl?

FLEX er stórkaupandi á bílum og tengdri þjónustu. Þannig njótum við bestu mögulegu kjara hjá öllum okkar birgjum. Þessir magnafslættir endurspeglast síðan í leiguverðinu sem þú nýtur góðs af.

Algengar spurningar og svör

Hér eru algengar spurningar og svör. Finnir þú ekki svarið sem þú leitar að hafðu þá endilega samband og við svörum öllum þínum spurningum.

Algengast er að leigutaki fái sendan rafrænan greiðsluseðil í heimabanka og reikning í tölvupósti. Hægt er að óska eftir beingreiðslu á leigunni ef það hentar betur.

Samningur um leigutíma er bindandi. Ef upp koma óvæntar aðstæður er mikilvægt að hafa samband sem fyrst svo við getum fundið farsæla lausn í sameiningu.

Það getur verið erfitt að komast hjá því að bílar verði fyrir einhverjum skemmdum. Ef skemmdir á bíl eða slit eru meiri en það sem eðlilegt má teljast þarf leigutaki að greiða aukalega fyrir það. En hvað er eðlilegt slit? Hér má sjá dæmi um hvað telst eðlilegt og hvað ekki varðandi útlit og ástand bíls þegar honum er skilað.

Samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er FLEX skylt að krefja viðskiptavini um viðurkennd persónuskilríki áður en viðskipti geta átt sér stað. Löggild skilríki eru einungis: rafræn skilríki, ökuskírteini og vegabréf. Fólk með erlent ríkisfang þarf ávallt að framvísa vegabréfi.

Verði FLEX bíllinn þinn fyrir, eða leigutaki valdur að, tjóni skal tilkynna það í netfangið [email protected] eða í síma 419-2000. Starfsfólk FLEX mun leiðbeina þér um næstu skref. FLEX bílar eru tryggðir hjá Sjóvá.

Óheimilt er að fara með ökutæki úr landi sem eru á leigu hjá FLEX.
Ef þú þarft neyðarþjónustu að halda utan hefðbundins opnunartíma þá bendum við þér á að hringja í BL í síma 525 8000.